149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:04]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Sá sem hlýðir á ræðu eins og hv. þingmaður flutti áðan getur varla leyft sér að halda því fram að þetta séu ekki upplýsandi umræður. Ég vildi óska að hér hefðu verið í salnum einhverjir fulltrúar stjórnarliðsins eða bara einhverjir þeirra sem eru að reyna að þvinga þetta mál í gegn og hlýtt á ræðu hv. þingmanns, því að hann kemst einmitt að kjarna málsins. Og hvernig gerir hann það? Með því að skoða einfaldlega reglugerðirnar, skoða hvað þetta gengur allt saman raunverulega út á. Við svo sem vissum það, vorum búin að gera okkur grein fyrir því hver væru meginmarkmiðin með þessum þriðja orkupakka, sem felast m.a. í að hrinda úr vegi hindrunum hvers eðlis sem þær væru gagnvart hinu stóra markmiði Evrópusambandsins um tengingu kerfa og sérstaklega tengingu við umhverfisvæna orku En hv. þingmaður nefndi einmitt mjög skýrt og gott dæmi um það hversu langt þetta gengur í reglugerðunum sjálfum, sem hér er ætlast til að Alþingi Íslendinga innleiði.

Af því að hv. þingmaður nefndi að það sama ætti væntanlega við um tengingar með sæstreng og tengingar á landi, þá myndi ég þó bæta við og kannski spyrja hv. þingmann: Á það ekki jafnvel enn frekar við um sæstreng í ljósi þess að Evrópusambandið, í lýsingu á markmiðum þriðja orkupakkans og ACER í lýsingum á verkefnum þeirrar stofnunar, leggur sérstaklega áherslu á tengingu svokallaðra einangraðra svæða og nefnir sérstaklega eyjar í því samhengi?