149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:12]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég minntist á það áðan í fyrri ræðu minni að ég myndi vitna í skrif Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi þingmanns. Hann hélt mjög góða ræðu á fundi úti á Austurvelli fyrir um tíu dögum. Þar fór hann yfir þrjú mál sem varða þann skaðabótarétt sem myndast þegar fyrirvarar halda ekki. Hann nefndi þrjú dæmi sem ég ætla aðeins að segja frá. Eitt var í Slóvakíu sem í mjög stuttu máli varðaði heilbrigðismál. Slóvakar voru dæmdir til að borga 3 milljarða auk vaxta og lögfræðikostnaðar til fyrirtækis sem taldi sig hafa, og hafði greinilega samkvæmt samningnum, rétt til að stunda sína starfsemi. Annað dæmi er frá Þýskalandi um stórt fjölþjóðlegt orkufyrirtæki sem fór í skaðabótamál gagnvart almenningi, 647 milljarðar kr. auk hagnaðarmissis. Þetta var sem sagt seinna málið. Þriðja málið sem Ögmundur tiltók er mál sem okkur er kunnugt og varðar innflutning á hráu, ófrosnu kjöti, þar sem verslunarveldinu í landinu voru dæmdir 3 milljarðar í skaðabætur, sem þeir eru reyndar ekki búnir að skila almenningi í lægra vöruverði.

Ögmundur segir — og nú langar mig til að fara beint í ræðu hans, með leyfi forseta:

„En þannig standa málin og nú vitum við hvað reynslan ætti að kenna okkur. Og því spyr ég þegar til stendur að bjóða okkur upp á sömu trakteringar aftur, hvað halda menn að gerist þegar kapalfyrirtæki sem koma vill rafmagni frá Íslandi til Evrópu um jarðstreng, fer í mál við okkur skattgreiðendur fyrir að standa í vegi fyrir verslun með rafmagn sem við höfum fallist á að skuli heyra undir fjárfrelsið svokallaða, hömlulaust flæði viðskipta, fjármagns, vinnuafls og varnings. Við höfum þegar fallist á og værum nú að geirnegla með þriðja orkupakka að með rafmagn eigi einmitt að fara sem hvern annan varning, vöru en ekki sem grunnþjónustu við samfélagið. Þetta er mergurinn málsins. Út á þetta ganga þessir orkupakkar.“

Ögmundur heldur áfram, með leyfi forseta:

„Menn rýna í pakka eitt og tvö og nú orkupakka þrjú. Á morgun verður rýnt í orkupakka fjögur og fimm, sá fyrri er tilbúinn, hinn síðari í smíðum. Í mörgum tungumálum er að finna varnaðarorð um að mönnum sé hætt við að sjá ekki skóginn fyrir trjánum, að hin smærri atriði komi í veg fyrir að heildarmyndin greinist. Einmitt þetta hefur í of ríkum mæli gerst í þessu máli. Auðvitað eigum við að skoða einstök tré og sömuleiðis einstakar vörður á vegferð okkar en við megum aldrei gleyma hvert vegferðinni er heitið. Henni er heitið inn á markaðstorgið með orkuna. Því fylgja skuldbindingar sem síðan hafa afleiðingar. Þetta verðum við að horfast í augu við.“

Ögmundur lýkur ræðu sinni með þessum orðum:

„Hér í þessu húsi, Alþingishúsinu, er nú tekist á um þriðja orkupakkann. Þau sem eru pakkanum andvíg eru sögð stunda málþóf. Þetta er okkur sagt í Ríkisútvarpinu. Okkur er sagt að sex flokkar af átta styðji þingsályktunartillöguna, nær allir þingmenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja, Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar framboðs“ — eins og hann kallar sinn gamla flokk. — „Við vitum að Samfylking, Viðreisn og Píratar vilja áköf samþykkja. Eftir standa þá Miðflokkur og Flokkur fólksins. Þökk sé þeim og öllum hinum sem kunna að brjótast út úr klefum sínum.“

Síðan segir hann, og þetta las ég áðan:

„En það er svo undarlegt að þegar rætt er um málið manna á milli, úti í samfélaginu, þá blasir við allt önnur mynd. Þar eru hlutföllin allt önnur. Þar er fólk sem kaus Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn og Vinstrihreyfinguna – grænt framboð í góðri trú, á allt öðru róli en meintir fulltrúar þeirra á Alþingi.“

Hvað segir þetta okkur, herra forseti? Þetta segir okkur að þetta mál á auðvitað að vera hafið yfir flokkspólitík. Málið á að vera þannig vaxið og við eigum að vinna það þannig að bestu fyrirvarar séu settir og búið er að benda á leið til þess. En þeir sem bera þetta mál fram eru svo ákafir í því að vilja ekki gangast við því að gera mistök, hljómar svolítið eins og Roy Rogers, hjá Halla og Ladda: „Ég þarf ekki byssu, […] ég geri aldrei skyssu“. Það er nefnilega mannlegt og gott að gangast við mistökum og læra af þeim. Þess vegna finnst mér, og ég er eiginlega að biðla til þeirra sem bera þetta mál fram, að þeir leiti samkomulags við okkur sem höfum verið að tala gegn málinu til að hægt sé að koma á eðlilegum fyrirvörum, senda málið í sameiginlegu nefndina og fá til baka alvörufyrirvara sem halda (Forseti hringir.) þannig að við getum innleitt þennan orkupakka án þess að skaða okkur. Þá væri til mikils unnið.