149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:19]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um að Ögmundur Jónasson er gegnheill maður, algjörlega, og hann er prinsippfastur. Hann var á móti fyrsta og öðrum orkupakkanum eins og félagar hans, sem nú eru búnir að snúa við blaðinu og eru orðnir helstu talsmenn markaðsvæðingar orkunnar á Íslandi í dag. Öðruvísi mér áður brá, sagði kerlingin. En þetta er bara svona og við þetta búum við.

Ég hef líka áður í ræðu, ég man ekki alveg hvenær það var því að fundir eru orðnir langir, þá las ég einmitt upp orð Tómasar Inga Olrichs, gegnheils Sjálfstæðismanns, fyrrverandi þingmanns, ráðherra og sendiherra. Hann hafði í sjálfu sér nákvæmlega sömu varnaðarorð uppi. Það er náttúrlega vegna þess að þessir ágætu menn og fleiri, t.d. Jón Baldvin Hannibalsson og fleiri fyrrverandi þingmenn og ráðherrar, sem upplifðu innleiðingu á fyrsta og öðrum orkupakkanum sáu hvar rangt var gert. Þeir lærðu af mistökunum, annað en þeir fulltrúar, eða meintir fulltrúar eins og Ögmundur kallaði þá, sem sitja hér á þingi og taka engum sönsum og hlusta ekki á neinn. Þeir eru búnir að ákveða að orkupakki þrjú skuli innleiddur, sama hvað á dynur, fyrirvaralaus eða -lítill. Það er eins og mönnum standi hreinlega á sama um þetta þótt ég vilji ekki trúa því.

Ég tek undir með hv. þingmanni, okkur ber að hlusta á reynslubolta úr stjórnmálunum. Auðvitað er það þannig í þessu starfi að við fáum fullt af ráðleggingum og tökum síðan okkar eigin afstöðu og þannig á það að vera. En ég hef haft „tendens“ til þess þann stutta tíma sem ég er búinn að vera í stjórnmálum að þegar menn af þessum kalíber tala þá hlustar maður.