149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:22]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Margt er skrýtið í þessu öllu saman þegar við erum farin að sjá það að flokkur sem kennir sig við sjálfstæði landsins tekur af skarið að gefa það í bútum til erlendra og yfirþjóðlegs valds. Hinum megin er flokkur sem einhvern tímann vildi verja auðlindir landsins og hafa þær í almannaeigu og láta almenning væntanlega njóta góðs af því fyrir lítið fé, tekur að sér að markaðsvæða sömu orku í dag. Við hljótum að spyrja okkur: Hvað í ósköpunum gerist og gerðist við ríkisstjórnarborðið þegar þetta var ákveðið? Hvað er það sem fær þessa flokka sem mynda núverandi ríkisstjórn, ég er ekki að tala um flokkinn þar í miðjunni, að fara í þá vegferð sem hér er farin? Hvað verður til þess að prinsippin eru látin víkja bara sisvona? Hver er það sem rekur það áfram? Hver er það sem, ég ætla ekki að segja hagnast á því, en hver er það sem telur þetta svo mikilvægt að menn geta beygt frá öllum prinsippum sínum?