ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Mig langar aðeins að velta upp smáhugsun áður en ég beini beinum spurningum til hv. þingmanns. Ef við veltum fyrir okkur þessum fjórða orkupakka er reynsla Norðmanna sú, samkvæmt skýrslu sem var gerð þar í landi, að orkuverð hækkaði til stórnotenda, veikti stöðu fjölmargra atvinnugreina og kippti jafnvel fótunum undan þeim. Þá má helst telja ál-, járn-, timbur- og pappírsiðnað. Við ættum kannski að fara að hugleiða aðeins í framhaldinu áhrifin af orkupakka fjögur vegna þess að ég er nokkuð viss um að hann verður innleiddur hér á ljóshraða þegar orkupakki þrjú er farinn í gegn.
Þá langar mig að velta upp nokkrum spurningum úr því að við erum enn í orkupakka þrjú. Tveir stjórnmálaflokkar hafa ályktað gegn orkupakka þrjú en þingflokkar þessara stjórnmálaflokka hafa algjörlega skipt um skoðun. Er eitthvað í pakkanum sem við erum ekki upplýst um? Telur hv. þingmaður að þingmenn átti sig ekki á umfangi málsins? Er það það sem veldur því að þeir skipta svona um skoðun? Ég er bara að velta þessu fyrir mér af því að ég held að fólk sé hér að vinna sína vinnu af heilum hug og mér finnst óeðlilegur viðsnúningur hreinlega hafa orðið á milli landsfunda þessara flokka og svo þess sem fram kemur þegar komið er í þingsal.