ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir ræðuna og þá djúphygli sem hann jafnan sýnir í ræðum sínum hér, ekki síst um þetta mál. Ég vildi gjarnan nota þetta tækifæri til að taka upp við hv. þingmann stöðu þeirra hv. þingmanna sem hafa kynnt alþjóð afstöðu sína til orkupakkans og ástæður sínar fyrir því að þeir kjósa að veita honum atbeina sinn. Þetta eru hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Þau segja bæði, með leyfi forseta, að orkupakkinn sé „til hagsbóta fyrir Íslendinga vegna aukinnar neytendaverndar og reglna sem stuðla að aukinni samkeppni og jafnræði milli aðila, sem ætti almennt að stuðla að lægra verði“.
Þetta var haft eftir öðrum höfundinum.
Hinn segir að reglur pakkans leiði til aukinnar neytendaverndar og stuðli að aukinni samkeppni og jafnræði milli aðila sem alla jafna stuðlar að lægra verði.
Þetta er eiginlega sami textinn þannig að þarna eru menn mjög samdóma í áliti sínu.
Nú hefur verið fjallað mjög ítarlega um það af hálfu okkar sem höfum hvað mest fjallað um þessi mál í ræðustól undanfarin dægur að markmið EES-samningsins sé m.a. einsleitni og ákveðið jafnvægi sem að öllu öðru jöfnu ætti að leiða af sér að fyrir land eins og okkar sem er með lágt verð ætti afleiðingin að vera hærra verð þegar fram líða stundir. Síðan hafa þessir aðilar bent á neytendavernd án þess að rökstyðja það með nokkrum hætti að henni sé áfátt hér á landi. Þær virðist allar vera á mjög mjóum þvengjum, (Forseti hringir.) hinar málefnalegu ástæður fyrir stuðningi þessara hv. þingmanna við pakkann. Hvert er álit hv. þingmanns á þessu?