ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Fyrst ætla ég að segja að djúphyglin í ræðu minni í þetta sinn er í eigu Ögmundar Jónassonar, svo ég skreyti mig ekki með lánuðum fjöðrum. Þessir tveir ágætu hv. þingmenn halda því fram að einsleitnin geti leitt til lægra orkuverðs en reynslan kennir okkur annað, hún kennir okkur að innleiðing orkupakka eitt og tvö hækkaði verð til neytenda á Íslandi. Þessu hafa allir haldið fram nema hv. þm. Þorsteinn Víglundsson sem kom með graf frá Hagstofunni. Landssamband bakarameistara hefur hins vegar komið fram og sagt: Rafmagnsreikningurinn hækkaði hjá okkur.
Hv. þingmaður hér í hópnum sem kynti og kyndir enn hús sitt með rafmagni hefur sagt: Orkureikningur minn hækkaði verulega við þetta, þannig að ég veit ekki hvað mönnum gengur til að núna allt í einu muni verðið lækka. Menn hafa sagt að neytendaverndin felist m.a. í því að geta skipt um orkusala.
Það eru allt gagnlegar upplýsingar sem hafa komið smátt og smátt inn í þessa umræðu og það hefur komið fram að á síðasta ári ef ég man rétt, eða kannski var það 2017, skiptu u.þ.b. 350 af 140.000 heimilum í landinu um orkusala. Menn töldu það ekki borga sig eða vera þess virði að fara á milli fyrirtækja fyrir nær enga umbun. Þetta er í sjálfu sér svipað og eldsneytismarkaðurinn á Íslandi. Við getum nánast farið af bensínstöð á bensínstöð og munurinn er yfirleitt 10 aurar. Einstaka stöðvar eru með betra verð, og það er fyrir erlenda samkeppni, en að öðru leyti (Forseti hringir.) er þetta einsleitur markaður.