149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:44]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðu hans og einnig það hversu skýrmæltur hann er varðandi orkuverðið vegna þess að ég veit að þingmaðurinn mælir þar af eigin reynslu. Sú reynsla tekur til, veit ég, heimabyggðar hans á Vatnsleysuströnd þar sem samfélagið þar þurfti í framhaldi af líklega öðrum frekar en fyrsta orkupakkanum, að axla mjög verulegar byrðar í hækkun raforkuverðs, kannski allt að því tvöföldun, ef ég hef skilið þingmanninn rétt.

Móverkið allt saman sem Evrópusambandið, öllu heldur Evrópska efnahagssvæðið vildi ég sagt hafa, er byggt á miðast við að ákveðið samræmi ríki og einsleitni. En að halda því að blaðalesendum að búast megi við að orkupakki þrjú muni hafa þær afleiðingar að raforkuverð til heimila og til atvinnufyrirtækja muni lækka, það er ákveðinn ábyrgðarhluti, verð ég að leyfa mér að segja. Þess vegna er mjög gott að hv. þingmaður hafi talað svo skýr sem raun ber vitni í því máli.

Ég vil vekja athygli þingmannsins á því að komið er í dreifingu plagg sem virðist vera drög að reglugerð sem á að innleiða reglugerð 713, reglugerð á Evrópulagamáli þýðir á íslensku lög, og þar er fundinn þessi fyrirvari sem afgreiddur var á fundi utanríkismálanefndar af Davíð Þór Björgvinssyni á þann veg að hann hefði ekkert þjóðréttarlegt gildi og væri ætlaður til heimabrúks. Ég vil kannski fá viðbrögð hv. þingmanns við því að þessi fyrirvari skuli nú loksins hafa litið dagsins ljós (Forseti hringir.) að því er mér sýnist í tölvupósti frá hv. formanni utanríkismálanefndar.