149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:50]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta er alveg rétt hjá hv. þingmanni að fyrst á annað borð var verið að fara þessa leið þá skuli það vera gert með reglugerð. Það er auðvitað veikara en með lögum. En kjarni málsins er sá að okkur hefur ekkert orðið ágengt hvað varðar svona fyrirvara, hvort heldur í reglugerð eða lögum, og eins og hefur verið margnefnt hér í ræðustól í tengslum við þetta mál er hið svokallaða hráakjötsmál alveg kristaltært dæmi um það. Við undirgöngumst matvælalöggjöf Evrópusambandsins 2009 og höfum áhyggjur af því að þar þurfum við að heimila innflutning á hráu kjöti til landsins sem getur haft slæm áhrif fyrir okkar hreinu bústofna og okkar hreina landbúnað. Síðan kemur á daginn að fyrirvarinn sem við setjum í lög um bann við innflutningi, þ.e. setjum á frystiskylduna, kemur ekki til með að halda neitt. (Forseti hringir.)

Þessir fyrirvarar halda ekki nema farin sé hin lögformlega (Forseti hringir.) leið. Ég held að allir séu búnir að sjá það.