149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:51]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það var í rauninni sláandi að heyra upplestur hv. þingmanns hér áðan. Ég vissi svo sem að ekkert væri að marka fullyrðingar orkupakkasinna um að þetta gæti leitt til lægra raforkuverðs í ljósi reynslunnar. Ég þekki til að mynda eigið dæmi hv. þingmanns sem eitt og sér nægði til að sýna fram á rangfærslur orkupakkasinna. En svo bætast hér við ýmsar frásagnir sem eru að mínu mati hreinlega sláandi og lýsandi fyrir að þessir orkupakkar eru ekki til þess fallnir að bæta hag íslensks almennings eða íslenskra fyrirtækja. Og það er furðulegt að þeir sem nú berjast fyrir þriðja orkupakkanum skuli einfaldlega notast við einhverja talpunkta frá Evrópusambandinu, einhverja punkta sem það notar til að reka áróður fyrir þessu í sínum heimalöndum og menn bara að þýða það og endurflytja hér algjörlega án samhengis við raunveruleikann.

Fyrst við tölum um talpunktana og rökstuðning Evrópusambandsins virðist það fyrst og fremst hafa gengið út á tvennt. Annars vegar að þetta snerist um að veita meiri umhverfisvæna orku og hins vegar neytendavernd. Er ekki samt tilfellið einfaldlega það að hér á Íslandi snýst þetta hvort tveggja upp í andhverfu sína hvað varðar umhverfisvæna orku, þ.e. að setja íslensku, hreinu, umhverfisvænu orkuna í pott með kolaorkunni?

Hvað varðar neytendaverndina þá er beinlínis komið í veg fyrir, eins og hv. þingmaður lýsti hér áðan, að menn megi selja orku á á betra verði en annars staðar. Þannig að meginrök Evrópusambandsins fyrir þessum orkupakka (Forseti hringir.) snúast upp í andhverfu sína á Íslandi. Er hv. þingmaður sammála mér um það?