ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Já, ég er svo hjartanlega sammála hv. þingmanni hvað þetta varðar. Þetta er algjörlega búið að snúast upp í andhverfu sína. Og eins og ég nefndi hér áðan er það þyngra en tárum tekur að við þurfum að breyta eftir því sem Evrópusambandið leggur til og segir okkur að gera í þessum efnum, eins og t.d. með niðurgreiðslurnar, að þær eru bara bannaðar. Öll sérkjör sem skipta almenning í landinu verulegu máli, lífsgæði, að geta fengið ódýra orku — þau kjör eru bönnuð. Þetta eru sérkjör sem eru bönnuð. Það er svona svipað og að tilskipun kæmi frá Evrópusambandinu um að það væri allt of ódýrt að fara í sund á Íslandi og það þyrfti að hækka miðaverðið í sundlaugarnar upp í kannski 2.000–3.000 kr. miðann. Það er þá bara skerðing á lífsgæðum.
En þetta er nákvæmlega sama dæmið, að við þurfum að hlusta á það og fara eftir því sem Evrópusambandið segir okkur um hvernig við eigum að bæta lífskjör fólks sem býr í þessu landi. Þetta er búið að snúast algerlega upp í andhverfu sína. Að menn skuli bara undirgangast þetta möglunarlaust, ráðherrar. Þeir hafa ekki einu sinni hugmynd um hvað raforkuverðið kemur til með að hækka mikið.
Mér er sérstaklega minnisstætt þegar ég skoðaði aðdraganda þess að undirgangast orkupakka eitt og tvö. Þá skoðaði ég bréf sem ég komst yfir frá ráðuneytinu þar sem menn eru að ræða þessi mál. Þá segir í bréfinu „að hugsanlega geti orðið breytingar á þessum sérkjörum“ — hugsanlega. Þannig að þeir vissu það ekki einu sinni í ráðuneytinu hvaða áhrif þetta gæti haft á almenning. Engu að síður innleiddum við þetta bara eins og ekkert væri og svo sjáum við jú eftir á hverjar afleiðingarnar urðu.
Við erum í nákvæmlega sömu stöðu núna, herra forseti. (Forseti hringir.) Við vitum í raun og veru ekkert hvaða afleiðingar þetta kemur til með að hafa fyrir okkur að innleiða orkupakka þrjú. En eitt er ljóst, þetta er sameiginlegt markaðssvæði þar sem ekki verður látið viðgangast að það sé eitthvað ódýrari orka hér en (Forseti hringir.) annars staðar í Evrópu.