149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:59]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Ég kom aðeins inn á það í fyrri andsvörum við aðra hv. þingmenn þar sem ég ræddi um líkleg áhrif á innleiðingu orkupakka fjögur sem nú er tilbúinn og til umræðu í Noregi. Áhrifin eru reifuð í skýrslu sem ber heitið, með leyfi forseta, „EUs energiunion, strømprisene og industrien“. Í skýrslunni kemur skýrt fram að norsk stjórnvöld munu ekki hafa ákvörðunarvald yfir inn- og útflutningi á raforku eða verðlagningu hennar. Verðhækkanir hafa þegar komið fram í Noregi eftir innleiðingu orkupakka tvö og orkupakka þrjú og virðist þetta á sömu leið hér, hafi ég tekið rétt eftir í ræðu hv. þingmanns.

Ég velti fyrir mér hvort þetta verði eitthvað öðruvísi hér á landi. Ég skildi hv. þingmann þannig að orkuverð hafi nú þegar hækkað og fyrirsjáanleg hækkun væri síðan í farvatninu. Kannski þurfum við ekki einu sinni að líta til Noregs. Hv. þingmaður sagði að dæmin væru kannski nær okkur, líka í tíma, ef eitthvað væri, þar sem við gætum vitnað til þess að svokallaðir fyrirvarar voru settir þegar verið var að ræða frosna, hráa kjötið. Mér finnst það mjög áhugavert og vil fá svör frá hv. þingmanni varðandi það.