ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni kærlega fyrir svarið. Ég velti fyrir mér í framhaldinu þar sem hann talar um virkjunarleyfi og vindmyllugarða, að undanfarin misseri hefur virkjanaleyfum undir 10 MW fjölgað. Það er vegna þess að hægt er að fá slík leyfi án þess að þau þurfi að fara í umhverfismat. Þetta hefur verið möguleiki frá 2011. Það er áhugavert að heyra hvort hv. þingmaður hafi hugmynd um hversu mikil aukning hafi orðið á þessum virkjunarleyfum og til hvers þau muni hugsanlega leiða.