ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er mjög gott að hv. þingmaður skuli hafa nefnt reglugerð 714. Hún er svo sannarlega nefnd í álitsgerð þeirra Friðriks Árna og Stefáns Más. Hún er nefnd í því samhengi að það kunni, eins og þeir segja, að rísa upp stjórnskipuleg álitaefni af sama toga og þeir rekja svo ítarlega varðandi reglugerð 713 en þeir telja umfjöllun um það greinilega falla utan við það svið sem þeir eru að fjalla um í álitsgerð sinni.
Þeir vekja það svo sannarlega upp að um reglugerð 714 kunni að gilda sömu stjórnskipulegu álitamál og varðandi 713. Spurning hv. þingmanns á því fullkominn rétt á sér, að það veki spurningar af hverju ekki er gerður fyrirvari við 714 rétt eins og ætlunin er að gera með 713.
Reyndar vísa þeir sömuleiðis til tiltekins ákvæðis í tilskipun um raforkumál sem ætlunin er að innleiða núna og það er ákveðinn liður í 37. gr. tilskipunar sem nú verður 72/2009 sem sömuleiðis væri ástæða til að undanskilja til að tryggt sé að íslenskir hagsmunir séu varðir.
Það er búið að dreifa drögum að þessari innleiðingarreglugerð. Ég hef nefnt áður að það veki í fyrsta lagi spurningar af hverju þetta er gert með reglugerð en ekki með lögum og sömuleiðis vekur það athygli að þessu er dreift meðal þingmanna. Hvað fylgir þessu skjali sem menn hafa beðið eftir? Bara nákvæmlega ekki neitt. Ekkert, engin skýring, enginn texti, ekki neitt, hvað þá að það sé einhver lögfræðileg greining á því hver hver væri áhrifamáttur þessa fyrirvara og hvert væri (Forseti hringir.) þjóðréttarlegt gildi hans að bestu manna yfirsýn. Þetta bara er ekki með.