149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:51]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég skil vel að atvinnurekendur séu nokkuð fylgjandi því að fara þessa leið en ég velti fyrir mér hvort þeir geri sér grein fyrir því að það er til önnur leið. Það er til sú leið að senda orkupakka þrjú til sameiginlegu EES-nefndarinnar, setja upp raunverulega fyrirvara um það hvernig við viljum gera hlutina. Síðan fáum við það samþykkt og tökum það aftur til greina og þá getum við ímyndað okkur að hlutirnir væru gerðir á okkar forsendum. Ég vildi óska þess að atvinnurekendur sæju það þannig að það væri gott að gera hlutina á okkar forsendum og þá meina ég á forsendum fólksins í landinu og á forsendum þeirra fyrirtækja sem reiða sig á lágt orkuverð.

Fyrst hv. þingmaður nefndi bændur veit ég ekki alveg hvort það sé leggjandi á bændur að orkureikningur þeirra hækki ofan í allt annað sem þeir hafa mátt þola núna hreinlega í kjaraskerðingu þannig að þetta mun leggjast á þá líka.

Það er alveg rétt að það er gott að vera með einhvers konar samkeppnisforskot en ég á ekki von á því að það haldi vatni, vil ég leyfa mér að segja, vegna þess að við verðum þá hluti af þessum Evrópumarkaði og gleymum því ekki að Evrópu vantar hreina orku. Á hvaða forsendum ætlum við að setja hlutina fram? Er það á forsendum Evrópusambandsins eða er það á okkar forsendum, okkar Íslendinga?