ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þetta ber allt að sama brunni. Þetta gengur allt út á að herða tökin jafnt og þétt, sama gamla salamí-aðferðin, að smátt og smátt festast ríkin kirfilegar í þeirri þróun sem Evrópusambandið vinnur leynt og ljóst að, að auka miðstýringu yfir Evrópu. Alveg sérstaklega á það við á tveimur sviðum, á sviði fjármála, m.a. peningamála, með evruna og það allt, og á sviði orkumála, sem er algjört forgangsverkefni hjá Evrópusambandinu. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að orkupakki þrjú og svo sá fjórði séu liður í því að herða tökin. En einmitt þess vegna verðum við nú að spyrna við fótum. Ef við gerum það ekki verða varnirnar miklu veikari þegar kemur svo að fjórða orkupakkanum.
Það er reyndar alveg sjálfstætt áhyggjuefni að framsetning stjórnvalda og rökstuðningur þeirra fyrir innleiðingu þriðja orkupakkans nú getur hæglega snúist í höndunum á þeim þegar kemur að fjórða orkupakkanum og veikt þar af leiðandi varnir Íslands. Ef svo ólíklega vildi til að sú ríkisstjórn sem nú situr tæki allt í einu upp á því að vilja verjast gagnvart fjórða orkupakkanum verður einfaldlega sagt: Við munum hvernig þið kynntuð þriðja orkupakkann og það var bara ljómandi fínt hjá ykkur, mun Evrópusambandið segja, en það sama á við núna og þið hljótið þá að vilja vera sjálfum ykkur samkvæm, íslenska ríkisstjórn, og fylgja eftir þeim fyrirheitum sem þið gáfuð þegar þið innleidduð þriðja orkupakkann.