149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:17]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég hef í fyrri ræðum farið yfir virkjunarsögu okkar Íslendinga sem var mér fróðleg lesning þegar ég var að undirbúa þær ræður. Þar varð ég var við margt athyglisvert í sögulegu samhengi þegar þetta er skoðað heildrænt. Ég leitaðist við í mínum fyrri ræðum að tengja hina miklu uppbyggingu á því sviði á tiltölulega skömmum tíma við aðrar framfarir í landinu og nefndi atvinnuuppbyggingu í landinu, tækniframfarir og bætt lífskjör en síðast en ekki síst og sérstaklega tengdi ég það við byggðaþróun og styrkingu byggða um allt land.

Hraði framfara hefur í raun aukist í samfelldum takti við það afl sem hefur verið virkjað og margfaldast á undraskömmum tíma, mestmegnis á síðustu 50–60 árum. Ekki er unnt að fjalla um virkjun fallvatnanna án þess að geta þess að með því afli sem við höfum þegar virkjað, sem er u.þ.b. 2800 megavött, að meðtöldum reyndar nokkrum gufuaflsvirkjunum, erum við komin út að ystu mörkum þess sem virkjanlegt er hér á landi af fallorku, að teknu tilliti til þekktra náttúruperla. Aflið sem eftir stendur er ekki svo ýkja mikið í samanburði við það sem við höfum þegar virkjað.

Herra forseti. Ef menn ákveða að virkja miklu meira af fallvötnunum verðum við að takast á við að þar sé komið að mörgum náttúruperlum sem ég efast um að nokkur sátt muni ríkja um að virkja. Allar þessar miklu framfarir hafa átt sér stað á skömmum tíma. Í raun hefur langstærstur hluti virkjana verið reistur á síðustu 60 árum.

Þá hef ég leitast við í mínum fyrri ræðum að tengja fortíðina í virkjunarsögunni við samtímann og átta mig á þeim tilfinningum sem landsmenn hafa til þessarar auðlindar í sögulegu ljósi. Þar hef ég lagt áherslu á að sú sátt sem tókst með því að fara út í þessar stórvirkjanir, fyrst með Búrfellsvirkjun, með því að taka stærri lán en hér höfðu áður þekkst fyrir henni og dreifikerfinu sem því fylgdi og selja orku til stóriðju. Þar á ég auðvitað við álverið í Straumsvík á sínum tíma.

Þessi ákvörðun átti sér kannski dýpri rætur en ætla mætti við fyrstu sýn. Þarna er ég að vísa til þess að landsmenn sættu sig við að taka áhættu á þeim forsendum, ætla ég, að síðar meir þegar lánin væru uppgreidd myndu landsmenn njóta góðs af í lægra orkuverði.

Kannski einmitt þess vegna geldur fólk varhuga við því í dag ef það telur of langt seilst í þessa auðlind sem landsmenn almennt telja að sé og eigi að vera í þjóðareign, eins og Landsvirkjun, og eru yfir höfuð mjög andsnúnir því að það verði einhverjir aðrir en almenningur á Íslandi sem eigi að njóta góðs af þessari auðlind. Það er því þeim mun mikilvægara að svo stórt, mikilvægt og afdrifaríkt mál eins og við ræðum nú á Alþingi fái eins mikla umræðu og skoðun og nokkur kostur er á. Þar vísa ég til orkutilskipunar Evrópusambandsins sem er sú þriðja í röðinni. Við eigum ekki að sýna nokkurt hik við að taka umræðuna lengra ef ekki er búið að sannfæra þjóðina um ágæti þess sem fyrirhugað er að gera. Við eigum ekkert að hika í þeim efnum, herra forseti. En það er einmitt það sem ríkisstjórnin er að gera, segir að málið sé svo vel unnið og skellir hreinlega skollaeyrum við öllum ábendingum um að tiltekin atriði þurfi að skoða betur. Þar get ég í dæmaskyni nefnt spurningar okkar Miðflokksmanna um lagalega fyrirvarann sem sagt var að ætti að gera það óhætt að samþykkja þetta mál. En svo fyrir fyrirfinnst þessi fyrirvari hvergi og í besta lagi vinsamleg tilmæli um sérstöðu Íslands í þessu máli.

Herra forseti. Það nýjasta er, og þá tekur steininn úr, að nú er bent á reglugerð í smíðum. (Forseti hringir.) Nú erum við búin að sjá hana, herra forseti, og hvað er þá? Ég mun koma miklu betur að því síðar. Það er reglugerð útgefin af ráðherra. Ég mun koma að því í næstu ræðu.