ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna. Maður veltir fyrir sér þegar maður heyrir svona ræður, og þegar farið er yfir söguna, hversu ótrúlegt það er að við skulum árið 2019 vera að innleiða reglur frá Evrópusambandinu án þess að hafa fyrir framan okkur orkustefnu, stefnu um það hvernig við sjáum framtíðina þegar kemur að orkumálum þjóðarinnar.
Á meðan við höfum ekki slíka stefnu erum við, eins og hinn ágæti lögmaður Eyjólfur Ármannsson hefur bent á, í raun að innleiða orkustefnu Evrópusambandsins. Það er varla það sem vakti fyrir mönnum þegar þeir fóru að virkja auðlindir til hagsbóta fyrir landið að eitthvert erlent ríkjabatterí myndi móta stefnu fyrir þjóðina um það hvernig hún ætlaði að nýta sínar auðlindir.
En það virðist vera. Með því að halda áfram þessari innleiðingu á orkustefnu Evrópusambandsins inn í íslensk lög erum við mögulega — ég ætla ekki að fullyrða það — að víkja til hliðar þeim tækifærum sem við höfum til að marka okkar eigin orkustefnu út frá okkar eigin þörfum, eigin væntingum og í raun tækifærum til að móta þá stefnu út frá þeim þörfum sem við teljum að muni gagnast sem best í framtíðinni. Valdið yfir mótun orkustefnu er að hluta til komið annað.
Mig langar að spyrja þingmann hvort þessi skilningur minn geti verið réttur í ljósi þess sem hann hefur séð og heyrt af umfjöllun um málið, lesið sér til og annað, og hvernig það fari þá saman með þeirri sýn sem hv. þingmaður fór yfir í ágætisræðu.