ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Í ljósi orða hv. þingmanns hér áðan langar mig að spyrja hann spurningar út frá ímynduðu dæmi: Gefum okkur að Landsvirkjun ætti kost á því að selja ákveðið magn af orku fyrir til að mynda 140 milljónir á ári til einhvers fyrirtækis í útlöndum eða inn í sameiginlega evrópska orkupottinn, eða að selja sama magn af orku til fyrirtækis hér á landi sem taki ákvörðun, hafandi fengið orkusamning, um að fjárfesta hér, selja sama magn af orku fyrir 100 milljónir á ári, annars vegar 140 milljónir úr landi eða bara 100 milljónir til þessa fyrirtækis innan lands. Segjum að fyrirtækið væri í Þorlákshöfn og eftir að það fengi þennan orkusamning ákvæði það að ráða til starfa 120 manns við að framleiða einhverja vöru sem væri svo að mestu flutt úr landi og skilaði með því auðvitað gjaldeyristekjum, en þessir 120 starfsmenn byggju flestir í Þorlákshöfn eða sveitum þar í kring og greiddu skatta til þeirra sveitarfélaga þar sem þeir byggju og í ríkissjóð. Samkvæmt þessu dæmi fengi Landsvirkjun minna fyrir að selja orkuna til þessa fyrirtækis í Þorlákshöfn.
En spurningin er þessi: Hvort væri hagkvæmara, hvort myndi skila eigendum Landsvirkjunar meiru?