ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar vangaveltur. Ég get að mörgu leyti fallist á margt af því sem hv. þingmaður færði hér fram um þjóðhagslega hagkvæmni. Ef eigandinn er ríkið sjálft þá getur það vissulega verið hagkvæmara að selja jafnvel vörurnar ódýrari til aðila sem leggja til samfélagsins frekar en að selja þær dýrari til erlendra aðila. Ég ætla ekki að leggja mat á hvort það séu 40% eða eitthvað slíkt, sem var sá munur sem var á þessum tveimur tölum sem hann gaf upp.
En ég var að velta því fyrir mér að ef sama fyrirtækið, á Þorlákshöfn og einhvers staðar úti í Belgíu, væri að framleiða sömu vöruna þá væri framleiðandinn í Belgíu eða Hollandi óánægður með að þurfa að borga meira en innlendi aðilinn og myndi eflaust kæra það og það yrði talin mismunun. Landsvirkjun yrði gert að hækka verðið til innlenda aðilans.
Ég var að velta upp því augljósa í svona umhverfi, svona samkeppnisumhverfi, þ.e. að jafnvel þótt verðið yrði hækkað hér innan lands upp í 140 milljónir, og þar fengjust 40 milljónir aukalega, þá rynnu þær hugsanlega út úr ríkissjóði jafn hraðan sem niðurgreiðsla til fyrirtækisins. Ég spyr hvort það væri þá heimilt samkvæmt Evrópureglum. Eða erum við komin í einhvers konar vítahring ef við færum inn í þetta og hér væri kannski alls ekkert hagkvæmt að reka marga þá atvinnustarfsemi sem er rekin í dag?