149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:47]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Það var merkilegt að heyra þennan upplestur hv. þingmanns á bókstaflega glænýjum upplýsingum, hlutum sem eru að gerast akkúrat núna og varða það sem við erum að ræða hér á sama tíma í þinginu. Þetta eru hlutir sem við höfum ekkert verið vöruð við og virðist ekki vera vilji til þess að taka með í reikninginn áður en menn taka ákvörðun um það hvort eða með hvaða hætti menn ætla að innleiða þessa reglugerð sem verið er að gera breytingar á núna.

En það er ekki bara þessi reglugerð nr. 72 sem hv. þingmaður nefndi. Kannast hv. þingmaður við reglugerð nr. 347/2013? Hún felur í sér breytingar á margnefndum reglugerðum 713 og 714, sem við erum að ræða hér, og rétt eins og það sem hv. þingmaður las upp áðan er hún til þess ætluð að auka vald ACER og auka miðstýringu Evrópusambandsins í orkumálum.

Eru menn ekki að sýna smátt og smátt meira á spilin? Nema hvað íslensk stjórnvöld virðast vilja koma í veg fyrir að við sjáum á spilin hjá gagnaðilanum. Okkur alþingismönnum almennt hlýtur að vera verulegt áhyggjuefni að sú skuli vera raunin. Í reglugerð 347/2013 sem ég nefndi eru svo afdráttarlaus ákvæði um valdheimildir ACER að ekki er hægt að halda því fram eftir að hafa lesið hana að tilgangurinn sé ekki að tryggja aukið miðstýringarvald yfir orkumálum í Evrópu.