149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:21]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þekki Carl Baudenbacher ágætlega. Ég myndi jafnvel kalla hann vin minn. Þetta er prýðismaður og snjall lögfræðingur en ég er ekki sammála honum í pólitík, það er alveg ljóst, og allra síst í Evrópumálum. Ég hefði haldið að þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og jafnvel Vinstri grænna teldu sig ekki heldur sammála Carli Baudenbacher í pólitík og Evrópumálum. Engu að síður er hann kallaður til til að veita álit sem er einmitt að miklu leyti og kannski fyrst og fremst pólitískt eins og hv. þingmaður kom aðeins inn á. Það segir sína sögu, þar er verið að kalla eftir í raun pólitísku áliti sem er miklu frekar þess eðlis að það hefði átt að gleðja þingmenn Viðreisnar eða Samfylkingarinnar. Ég hefði skilið ef ráðherrar úr þeim flokkum hefðu kallað eftir slíku áliti frá Carli Baudenbacher.

Eitt af því sem hann nefnir sem rök er, eins og hv. þingmaður gat um, að Evrópusambandið gæti móðgast. Það voru engin ný tíðindi fyrir okkur. Allir sem hafa átt einhver samskipti við það bandalag þekkja að því er ekkert vel við að menn sækist eftir undanþágum og slíku. Svo eru Norðmennirnir, vel að merkja varla allir Norðmenn, ég held að það sé fyrst og fremst ákveðinn hópur embættismanna í Noregi, og í því samhengi var nefnt að Íslendingar þyrftu að sýna Norðmönnum hollustu í þessu samstarfi, enda litu Norðmenn á Íslendinga sem nokkurs konar aukahluti eða fylgifiska í EES-samningnum. Það er náttúrlega afstaða sem við getum ekki leyft okkur að taka undir. Hvað það varðar þurfum við að vera algjörlega skýr á því að Ísland sé þátttakandi í EES-samstarfinu á jafnréttisgrundvelli.