149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:27]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur fjallað um hina norsku fyrirvara sem virðast vera teknir býsna léttvægt af hálfu Evrópusambandsins miðað við það sem við vitum um málið til þessa. Eins höfum við fengið þær upplýsingar, ef réttar eru, að þeir hafi ekki enn verið leiddir í norsk lög sem hafi þó verið eitt af skilyrðum Verkamannaflokksins ef ég man rétt.

Mig minnir að það hafi verið í fyrrasumar, ég held að ég hafi minnst á það fyrr í kvöld eða í dag, sem hingað kom norskur ráðherra og fór út í sveit með íslenska utanríkisráðherranum. Þeir létu mynda sig þar við heyrúllur og tilefnið átti að vera kurteisisleg heimsókn, viðræður um heykaup Norðmanna og eitthvað slíkt. Auðvitað var tilefnið orkupakkinn og þrýstingur Norðmanna um að klára hann.

Ég kannast ágætlega við að það var töluverður þrýstingur af hálfu Evrópuviðskiptaráðherra og viðskiptaráðherra Noregs á sínum tíma um að Ísland drifi sig í að innleiða þetta. Í Noregi virðast þeir helst keyra málið áfram sem vilja að Noregur gangi í Evrópusambandið. Maður veltir fyrir sér hvers vegna það sé, væntanlega vegna þess að þeir telja að það muni flýta fyrir inngöngunni með einhverjum hætti.

Getur virkilega verið að stjórnarflokkarnir sem á einum tíma í það minnsta voru þekktir fyrir andstöðu við Evrópusambandið séu farnir að flýta allt í einu fyrir því að auðvelda inngöngu ef svo ólíklega vildi til að einhverjum dytti í hug að reyna það í framtíðinni? Hvað skýrir pressuna í norskum stjórnvöldum út af þessum orkupakka á Ísland, hv. þingmaður?