149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:29]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Norska ríkisstjórnin, sem er frekar Evrópusinnuð, lagði mikið á sig til að koma orkupakkanum í gegnum norska þingið og féllst fyrir vikið á þessa fyrirvara sem sumir myndu halda fram, ekki hvað síst kannski norski Miðflokkurinn, að hafi verið blekkingar til að fá þingmenn til að hleypa málinu í gegn þó að þessir norsku fyrirvarar hafi vissulega verið mun ítarlegri en þeir íslensku. Þá ímynda ég mér að norska ríkisstjórnin, ég tala nú ekki um embættismennina í utanríkisráðuneytinu þar eða viðskiptaráðuneytinu, hafi áhyggjur af því að fari málið aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar sé þetta unnið fyrir gýg, þ.e. það átak sem lagt var í til að koma þingmönnum í þinghúsið. Það gekk erfiðlega í þessu tilviki, margir þeirra létu sig hverfa til fjalla, væntanlega með bakpokann á bakinu, en það náðist í nógu marga þingmenn til að hleypa málinu í gegn gegn því að stjórnin samþykkti þessa fyrirvara.

Nú eru menn farnir að hafa miklar efasemdir um að það sé nokkurt einasta hald í fyrirvörunum. Þeir eru búnir að bíða í 14 mánuði eftir að Evrópusambandið svari og staðfesti gildi þeirra. Ekki er enn búið að leiða þá í lög eins og fyrirheit var gefið um. Þá getur maður bara gefið sér að norska stjórnin, sem var í miklum vandræðum með að koma málinu í gegn, vilji ekki standa frammi fyrir því að fá málið inn aftur og að af þeim sökum fari fram fundir eins og fundurinn við heyrúlluna. Það dettur varla nokkrum manni í hug að norskur ráðherra komi til Íslands til að reyna að kaupa hey svoleiðis að ég held að óhætt sé að gera ráð fyrir að hv. þingmaður hafi rétt fyrir sér um að eitthvað meira hafi búið þar undir.