149. löggjafarþing — 108. fundur,  22. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:34]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég ætla að gera aftur einnar ræðu stopp á ræðuröð minni sem ég kalla „Og hvað svo?“, þar sem ég reyni að ramma inn hvað tekur við að innleiðingu lokinni. Ég held áfram með þá sviðsmyndargreiningu að aflokinni þessari ræðu hér.

Mig langar, af því að mér finnst það skipta máli samhengisins vegna, að koma inn í umræðuna afstöðu þeirra tveggja ráðherra sem með mál þriðja orkupakkans fara eins og hún birtist í lok árs 2018. Það er í rauninni fyrst og fremst afstaða hæstv. iðnaðarráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, og hæstv. utanríkisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Hæstv. utanríkisráðherra var í viðtali hjá Morgunblaðinu 15. nóvember 2018 þar sem yfirskrift fréttarinnar var „Fresta orkupakkanum til vors“. Með leyfi forseta, segir þar:

„Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að vegna gagnrýnisradda ætli ríkisstjórnin að fresta því að leggja fram frumvarp um þriðja orkupakkann fram á vor. Tímann muni sérfræðingar notað til að fara yfir samninginn.“

Við þekkjum öll hvernig sá tími var nýttur. Niðurstaða þess var það sem fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins hefur kallað lofsverðar blekkingar þar sem föndraðar voru upp einhverjar sjónhverfingafyrirvarar sem meira að segja stuðningsmenn orkupakkans hér á þingi vissu ekki hverjir voru og varð alveg sérstakt upphlaup hér í þingsalnum í byrjun þingfundar síðastliðinn mánudag sem allir sem hér voru sáu og urðu vitni að. En síðan í framhaldi af því, degi síðar, kemur hæstv. iðnaðarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, í viðtal hjá Morgunblaðinu. Þar er yfirskrift fréttarinnar „Útilokar ekki frekari frestun orkupakka“. Og þar segir, með leyfi forseta:

„Ekki er útilokað að framlagning frumvarps um innleiðingu þriðja orkupakka Evrópusambandsins frestist lengur en til vorþings.“

Þetta segir hæstv. ráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Frestist lengur en til vorþings, sem sagt fram á haustþingið 2019.

Af hverju er ég að nefna þetta? Við erum ekki í neinu tímahraki. Sú pressa sem búið er að setja þetta mál er algjörlega heimatilbúin og það er ekkert sem kallar á að við látum teyma okkur með þessum hætti á þann bás sem einhverjum innri króníkum Sjálfstæðisflokksins þykir henta núna. Einhvers lags valdabarátta er mögulega rótin að þessu, en það á ekki að vera vandamál okkar hinna hér á þingi.

Við getum nýtt tímann. Það eru óvissuatriði, spurningar sem hefur ekki fengið svarað, sem er þá hægt að taka drjúgan tíma í að svara þannig að öllum líði vel með hvernig farið verður með málið. Þar nefni ég m.a. fyrirvarana sem virðast æðiloftkenndir. Hagsmunir almennings sem nefndir hafa verið sem kjarnaatriði í því að þetta verði að innleiða með hraði eins og það kemur af kúnni. Þá á ég við sjónarmið sem koma upp varðandi neytendaverndina og meinta gegnsæið, sem kom síðan á daginn var ekkert áhersluatriði í neinum gögnum málsins.

Annað sem hvetur okkur til að ýta málinu fram á haustþingið er dagsetningin 23. september þar sem stjórnlagadómstóll í Noregi mun taka afstöðu til þess hvort innleiðingin í Noregi standist norsku stjórnarskrána. Niðurstaða þess getur haft áhrif á hvernig málið snýr við okkur. Þannig að úr því að við höfum tíma eigum við auðvitað að leyfa þeirri tímasetningu að líða.

Annað atriði sem gott væri að nýta tímann fram á haust í að skoða er fjórði orkupakkinn, sem nú ku vera tilbúinn. Ég hef ekki séð það, en ég veit að þeir sem hafa efasemdir um orkupakkann og stuðningsmenn alveg örugglega líka, myndu glaðir eyða sumrinu í að kafa ofan í það regluverk allt saman.

Í ljósi þess að nú eru Norðmenn búnir að bíða í 14 mánuði eftir því að Evrópusambandið láti svo lítið að svara þeim um nokkurn skapaðan hlut varðandi fyrirvarana, sem þeir töldu sig hafa gert, þá held ég að okkur sé hollast að flýta okkur hægt og nýta það augljósa tækifæri sem við höfum til að stíga til baka með þetta mál og taka það upp aftur í haust. Það er fullt af spurningum ósvarað.