ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég held að það væri margra hluta vegna skynsamlegt að nýta þann tíma sem við sannarlega höfum í þessu máli. Jafnt og þétt er myndin að fyllast, hvað varðar það hvernig haldið hefur verið á þessu innleiðingarmáli hér heima. Myndin er að fyllast hvað Noreg varðar; afstaða Evrópusambandsins ef það er rétt að rekið sé svona harkalega á eftir þessu. Í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins, þar sem sagt var frá sameiginlegum skilningi EFTA-ríkjanna á stöðu Íslands, er sagt frá því að fulltrúi Evrópusambandsins hafi lesið upp yfirlýsingu þess efnis að viðskipti Noregs, sérstaklega með orku, væru öll í óvissu sett yrði málið ekki innleitt hið snarasta af öllum ríkjum EES-samningsins. Þetta eru lítt dulbúnar hótanir og þá fyrst tel ég ástæðu til að halla sér aðeins aftur í sætinu og reyna að horfa yfir heildarmyndina.