149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:10]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ef Evrópusambandið væri bara vesen værum við í býsna góðum málum en þetta er miklu meira en svo. Það er hins vegar rétt hjá hæstv. fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins og ég tek algjörlega undir þau orð sem höfð eru eftir honum, og við alþingismenn þekkjum það vel, að Evrópusambandið er sífellt að reyna að búa til meiri miðstýringu og skipta sér meira af málum til að gera allt á sameiginlega markaðnum einsleitara og gera það helst þannig að menn hafi ekki hugmynd um hvaðan þeir komi og hvar þeir eru í þessu sambandi og er orkan er gott dæmi um það.

Markmið Evrópusambandsins er að gera orkumarkaðinn eins einsleitan og eina heild og mögulegt er og gera það þannig að það skipti ekki máli hvar menn eru innan EES-svæðisins, þeir eiga að geta fengið ákveðna orku á verði sem liggur fyrir o.s.frv. Ferlið eða ætlunin virðist vera að skylda ríkin til að taka á sig ákveðnar skuldbindingar og við erum að því, með orkupakka þrjú, að taka skref í þessa átt, í átt að meiri markaðsvæðingu og meiri miðstýringu. Það er sífellt verið að dýpka eða búa til meira vandamál fyrir Ísland að taka upp þessar gerðir eða þessi lög frá Evrópusambandinu og eftir því sem við tökum meira upp af þeim, þeim mun erfiðara verður að staldra við og gæta hagsmuna eða fullveldis landsins. Miðstýrða valdið í Brussel ásælist sífellt meiri völd, það er rétt, og ekki bara í Evrópusambandslöndunum heldur líka öðrum löndum EES-svæðisins.