ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég þarf aðeins að rifja upp dagsetninguna sem hv. þingmaður las hér upp. Eftir því sem ég best veit fór þetta mál fyrir sameiginlegu EES-nefndina í maí 2017, þ.e. þriðji orkupakkinn. Það breytir því ekki að spurningin snerist um það hvort við gætum sífellt verið að innleiða meira og afsala okkur mögulega valdi eða sjálfstæði, taka smám saman af sjálfstæði landsins. Ég held að svarið við því sé í raun já. Eins og ég hef verið að benda á í ræðum mínum hér í kvöld og í dag sjáum við það á fjórða orkupakkanum, sem hlaut samþykki í dag hjá framkvæmdastjórninni, Evrópusambandinu, að þar er áframhaldandi viðleitni til að draga völd frá einstökum ríkjum til miðlægra stofnana, breyta umsýsluferlinu. Hluti af því er að uppfæra, og það er búið að tilkynna að það eigi að gera, þær reglur sem við erum núna að velta fyrir okkur að innleiða hér, t.d. 72/2009 og 714/ 2009, held ég að hafi verið.
Allt þetta mun taka breytingum samkvæmt fjórða orkupakkanum og það mun þýða enn meiri völd til þessarar miðlægu stofnunar, minni möguleika á því að einstök ríki geti haft afskipti af innri orkumarkaði sínum o.s.frv. Þetta sjáum við nú þegar en samt sem áður er ekki staldrað við og heildin rýnd. Það er það sem ég held að sé svo mikilvægt að gera af því við höfum tækifæri til þess. Við höfum ekki alltaf tækifæri til að sjá hvað er í pípunum. En þar sem við höfum slugsast við að innleiða þriðja orkupakkann þá njótum við þess í dag að geta séð aðeins inn í framtíðina.