149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:22]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Ég fagna því fyrst og fremst að við séum ekki aðilar að Evrópusambandinu eins og þróunin er að verða, þ.e. ef vilji manna stendur til þess, og það næst fram, að hverfa frá því að allir þurfi að samþykkja hlutina til að þeir taki gildi, að einungis þurfi meiri hluta. Það er ekkert óeðlilegt að það sé ósk og vilji starfsmanna Evrópusambandsins sem vinna að því að búa til þennan sameiginlega markað með vöruna orku. Þarna er litið á orkuna sem eins mikla verslunarvöru og hvað annað. Fyrir okkur Íslendinga skiptir hún meira máli en svo að hægt sé að verðleggja hana eins og bíla eða mjólk eða eitthvað þess háttar.