149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:44]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa ræðu. Ég sé ekki betur en að þarna sé hann farinn að nálgast það sem kallað hefur verið hið áður óþekkta valdframsal, sem færustu lögmenn hafa einmitt varað mjög rækilega við. Ég verð að segja að það er náttúrlega gríðarlega sniðugt hjá Evrópusambandinu að troða inn á okkur stofnun eða anga stofnunar, sem ég mun nú örugglega fara yfir hvert verksvið er í einhverri ræðu á eftir. Það er hrollvekjandi upplestur að fara yfir hvaða verkefni og vald þessi yfirstofnun, ACER, hefur með höndum og hvaða vald og forræði hún hefur. Það virðist vera að við ætlum að gangast þessari stofnun á á hönd.

Þá kemur að aðdáun minni á Evrópusambandinu. Evrópusambandið þröngvar ekki einungis þessari stofnun upp á okkur heldur borgar Evrópa fyrir hana líka. Það er nú eiginlega hámark ósvífninnar, er náttúrlega feikigott fyrir þá.

Þannig að ég hef verið að velta mjög fyrir mér hlutverki þessarar stofnunar og boðvaldi yfir henni sem sannarlega mun ekki verða hjá íslenskum stjórnvöldum. Mig langar að biðja hv. þingmann um að að fara aðeins yfir hans sýn á akkúrat þetta, þ.e. völd og áhrif þessarar stofnunar á Íslandi eftir að við innleiðum þennan orkupakka og hvernig hann telur að boðvald með (Forseti hringir.) stofnuninni muni verða.