149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:46]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir andsvarið. Spurning hv. þingmanns er um sýn mína á völd og áhrif þessarar stofnunar, þ.e. Orkustofnunar eða eftirlitsvaldsins hér, sem er staðbundið, eftir innleiðingu þriðja orkupakkans. Þau völd munu verða mjög mikil og þau munu verða þess eðlis að eftirlitsstofnuninni er bókstaflega skylt að fylgja til fullnustu eftir stefnu og markmiðum Evrópusambandsins, ekki stefnu og markmiðum Íslendinga í orkumálum, enda er verið að leggja okkur orð í munn með salamíaðferðinni, eða verið að hengja myllustein um háls okkar, því að stefnan verður ekki okkar heldur verður hún Evrópusambandsins. Við höfum raunverulega ekki þessa stefnu. Og okkar færustu fræðimenn hafa einmitt komið inn á það að með þessu séu í raun og veru áhöld um hvort ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, þar sem við höfum jú áhrif, muni raunverulega vera aðilinn sem geti úrskurðað eða haft áhrif þar sem drögin að slíkum ákvörðunum komi raunverulega frá ACER ef upp koma álitamál, þ.e. að sú stofnun sé raunverulega yfir og alltumlykjandi.

Það er alveg rétt og ég samsinni hv. þingmanni í því að það eru líkur til þess að sú stofnun verði ráðandi í þessu og stefna Evrópusambandsins (Forseti hringir.) mun frekar um stefnu EES.