ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Þessi söguupprifjun er afar holl. Sá sem ekki vill skoða söguna er dæmdur til að endurtaka hana. Fyrir þá sem ekki eru forvitrir eða berdreymnir frekar en sá sem hér stendur er ein besta aðferðin til að spá í framtíðina sú að skoða söguna. Við getum rifjað það upp að í sögu þessarar þjóðar gengum við í gegnum mjög erfiða tíma fyrr á öldum þegar við áttum ekki skip og vorum upp á aðra komnir, erlendra aðila, með millilandasiglingar sem voru lífæð landsins líkt og orka er í dag varðandi atvinnuuppbyggingu og sjálfbærni. Það má leggja þetta á einhvern hátt að jöfnu. Það eru sennilega einhverjir erfiðustu tímar sem þjóðin hefur gengið í gegnum. (Forseti hringir.) Er það ekki rétt, hv. þingmaður, að við þurfum að skoða þetta í því samhengi?