149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:47]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Forseti. Þótt ég geti ekki látið hjá líða að gera athugasemd við það að forseti skuli vara sérstaklega við því að lesin verði ljóð í ræðustól Alþingis í ljósi þingsögu hæstv. forseta, sem ég hygg að geymi nokkur ljóðin, tel ég samt rétt að geta þess að athugasemd hæstv. forseta um gæði ljóðs Kristjáns Jónssonar Fjallaskálds um Dettifoss eru á margan hátt meiri en gæði ljóðs Einars Benediktssonar. Þetta segi ég sem aðdáandi Einars Benediktssonar.

Ég vil líka benda hæstv. forseta, fyrst hann er kominn út í þessa sálma, á ljóð Einars Benediktssonar, Tínarsmiðjur, sem fjallar einmitt um orku og framleiðslu þó að það sé reyndar ekki kannski á grænu nótunum.