ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það sem mig langaði að koma inn á í þessari ræðu minni er það með hvaða hætti við sjáum að raforkuverð til heimila muni hækka við orkupakka þrjú. Ég hef rakið það í ræðum hvernig orkuverð til heimilanna í landinu og fyrirtækja hækkaði við innleiðingu orkupakka eitt og tvö þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda á annan veg. Mér er minnisstætt þegar þáverandi iðnaðarráðherra fullyrti að orkuverðið myndi ekki hækka og auk þess má frá undirbúningi orkupakka eitt og tvö í ráðuneytinu á sínum tíma sjá þær bréfaskriftir sem benda til þess að ráðuneytið og starfsmenn þess hafi ekki gert sér fyllilega grein fyrir því að orkuverð til neytenda myndi hækka. Það er náttúrlega ámælisvert að því leytinu til að auðvitað eiga borgarar þessa lands að geta treyst því að stjórnvöld meti stöðuna rétt og hvaða áhrif og afleiðingar innleiðing tilskipunar af þessu tagi getur haft fyrir almenning. Þess vegna held ég að í þessum efnum sé sú hætta fyrir hendi að þær yfirlýsingar sem hafa verið gefnar hér um að þetta hafi engin áhrif, þetta sé bara neytendavernd og af hinu góða, komi síðan ekki til með að standast. Það er áhyggjuefnið og að sjálfsögðu byggt á því að fyrri yfirlýsingar, eins og ég nefndi, hafa ekki staðist í þessum efnum.
Með orkupakka þrjú verður skylt að veita einkareknum orkuverum, t.d. vindmyllum, tengingu við flutningskerfið sem þjóðin á. Þetta kemur til með að valda kostnaði og kalla á auknar fjárfestingar í flutningsgetunni. Samkvæmt tilskipun 72/2009 er þessu háttað með þeim hætti að þennan kostnað má ekki leggja á orkuverið, þ.e. skylt er að dreifa honum á alla notendur netsins. Það eitt og sér mun leiða til hækkunar á flutningskostnaði fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Hugsanlega mun stóriðjan sleppa af því að hún er með langtímasamninga eins og við þekkjum. Umrædd hækkun á raforkukostnaði heimilanna verður að veruleika, hvort sem sæstrengur kemur eða ekki. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hafa þetta í huga. Um þetta finnst mér ekki hafa verið nægilega mikið fjallað í þessari umræðu.
Komi hins vegar sæstrengurinn þarf að fjárfesta enn frekar í burðargetu landsnetsins alls og þá allt á kostnað innlendra raforkunotenda. Það er mikilvægt að hafa þetta í huga, við sjáum fram á að raforkukostnaður heimilanna mun hækka þegar þessir vindmyllugarðar og þessi aukna orkuvinnsla kemur til með að eiga sér stað þó að ekki sé kominn sæstrengur. Með innleiðingu orkupakka þrjú erum við að missa ákvörðunarvald á verðlagningu Landsnets. Það eitt og sér vegur mjög gegn hagsmunum almennings í landinu sem á Landsnet eins og við þekkjum og í raun allt flutnings- og dreifikerfi raforku í landinu. Þetta kerfi hefur verið byggt upp, eins og við þekkjum, með gríðarlegri fjárfestingu og umhverfislegum fórnum, landsvæði lögð undir línur og við þekkjum deilur í þeim efnum. Þetta hefur tekið verulega á og hefur líka gert það að verkum að ekki hefur skapast nógu mikil sátt um þessi málefni. Hins vegar er þetta flutningskerfi raforku ein sú verðmætasta sameign þjóðarinnar (Forseti hringir.) sem við eigum ásamt öðrum auðlindum.
Herra forseti. Ég óska eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá svo ég geti lokið þessari umfjöllun á eftir.