Óyfirlesin bráðabirgðaútgáfa frá talgreini.

149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:56]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er mjög mikilvægt málefni sem hann kemur þarna inn á, hvers vegna svona mikill áhugi er á því að reisa vindmyllugarða og virkjanir undir 10 MW vegna þess að það er auðveldara að koma þeim í framkvæmd út af umhverfismálum. Það vekur að sjálfsögðu spurningar, mjög réttmætar spurningar. Við því held ég að sé einfalt svar. Menn ráðast ekki í svona framkvæmdir nema sjá fram á að þær skili þeim hagnaði. Þegar fjárfestar á borð við sveitarfélög í Noregi sem standa á bak við fjárfestingarsjóð sem hefur áhuga á því að byggja vindmyllugarða, þá veltir maður fyrir sér að slíkur fjárfestingarsjóður sem sveitarfélög eiga aðild að leggur ekki út í einhverjar fjárfestingar sem eru áhættusamar. Þannig að sveitarfélögin sjá greinilega ábata í því að fjárfesta hér í vindmyllugörðum.

En svo er annað mál. Það er enginn akkur fyrir þessa vindmyllugarða, þessa fjárfesta, að framleiða rafmagn inn á kerfið hér á Íslandi vegna þess að það er umframorka í kerfinu sem nemur allt að 10% af framleiðslu Landsvirkjunar. Þess vegna er algerlega ljóst og þarf ekki að fara í grafgötur með það að það er útflutningurinn á orkunni sem þessir aðilar horfa til. (Forseti hringir.) Þess vegna gæti það gerst að ef menn sjá fram á að hér eigi ekki að innleiða þennan orkupakka geti það hugsanlega kippt stoðunum undan þessum aðilum, þessum fjárfestum, sem sýnir aftur á móti að það eru gríðarlegur þrýstingur á að innleiða þennan orkupakka.