ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mjög áhugavert. Ég held nefnilega að það verði mikill þrýstingur á sæstreng og hann verði ekki bara Evrópusambandsmegin, hann verði líka frá Íslandi. Fjárfestar væru fyrirtæki á borð við Landsvirkjun, eins og hv. þingmaður nefndi réttilega. Þess vegna á að innleiða þessa orkupakka sem er undirbúningur að sæstreng. Það er bara þannig, það er bara eitt af þessum skrefum. Þess vegna er mjög mikilvægt í augum þessara aðila að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Ef svo færi að að innleiðing yrði ekki að veruleika er náttúrlega búið að riðla öllum áformum þessara aðila. Þannig að það er alveg klárt í mínum huga að þarna er verulegur þrýstingur á að engar hindranir verði í því að héðan verði hægt að flytja út orku.
Það er svolítið einkennilegt að þessir fjárfestar, sem hafa þegar farið af stað og eru að undirbúa að reisa vindmyllugarða o.s.frv. virðast ekki hafa neinar áhyggjur af því að þetta verði stoppað af, að við höfnum þessum orkupakka. Það er eins og þeir viti nákvæmlega hvernig þetta kemur til með að fara. Er þá Alþingi orðið, eins og nefnt hefur verið, einhvers konar afgreiðslustofnun, bara eftir því sem fjárfestar óska eftir eins og í þessu máli? Maður veltir því fyrir sér hvort það sé kannski bara veruleikinn.