ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Jú, ég held að það sé alveg klárt mál að markaðsaðstæðurnar koma til með að hafa veruleg áhrif á okkur, raforkukerfið, almenning í landinu og fyrirtækin þegar kemur að því að við verðum aðilar að því sameiginlega markaðssvæði. Þá kemur til krafa um að hindrunum sé rutt úr vegi, það verði flæði um svæðið, raforkan flæði um allt svæðið og síðan er það lögmál framboðs og eftirspurnar að varan leitar þangað sem hæst verð fæst fyrir hana. Það verður náttúrlega á meginlandi Evrópu þegar sæstrengur verður kominn vegna þess að við erum með hreina orku. Hún verður verðmætari með hverjum deginum og það mun leiða til hækkunar á raforkuverði hér.
Það eru ekki bara markaðsaðstæður sem valda því að raforkuverðið kemur til með að hækka. Það kemur til með að hækka vegna aukins kostnaðar Landsnets, eins og ég rakti áðan, við að fara í auknar framkvæmdir við tengivirki, vegna aukinna virkjunarframkvæmda og síðan hækkanir sem koma til með að bresta á um leið og búið er að samþykkja þennan pakka hér, verði það að veruleika að hann verði samþykktur. Og þá eru það eftirlitsgjöldin sem á að leggja á og hækka verulega, um 45% á þessi fyrirtæki. Þetta mun allt lenda á almenningi á endanum.
Við erum því að sjá fram á hækkanir á raforkuverði. Talað er um að verði sæstrengur að veruleika eru nefndar tölur eins og 50% hækkun (Forseti hringir.) til heimila og fyrirtækja í landinu, sem er gríðarleg hækkun.