149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:36]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst vil ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir andsvarið. En ég held að það sé engum blöðum um það að fletta að iðnaður sem missir eitthvert samkeppnisforskot sem hann hefur án þess að geta mætt því með öðru hagræði í rekstri eða einhverju sem jafnar upp á móti því samkeppnisforskoti sem reksturinn tapar, er auðvitað miklu líklegri til að veslast upp og hætta eða vera fluttur en iðnaður sem stendur sterkum fótum á góðum grunni.

Varðandi stóriðjuna hér heima er hún nú bara þannig bransi að eigendur þessara fyrirtækja loka álverum eða annars lags málmvinnslum um allan heim á hverju ári, þannig að það er ekkert fráleitt að hugsa til þess að ef orkuverð hækkar mjög verulega þannig að rekstrareiningin er ekki starfhæf þannig arðsamt sé, muni slík starfsemi væntanlega flytjast annaðhvort nær uppsprettu auðlindanna eða nær þeim markaði sem framleiðslan framleiðir inn á. Það þarf enga sérfræðinga til að til að átta sig á því að hér á Íslandi erum við hvorki nærri mörkuðum né uppsprettu hráefna í samhengi álveranna, heldur höfum við þetta samkeppnisforskot sem felst í hagstæðu raforkuverði.