149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:39]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég hjó sérstaklega eftir síðustu orðum hv. þingmanns, hagstæðu raforkuverði. Forskot okkar er einmitt í hagstæðu raforkuverði þegar kemur að iðnaði og margvíslegri starfsemi sem er orkufrek. Það getur haft veruleg áhrif á ýmsar atvinnugreinar að verði niðurstaðan sú að hér verði lagður sæstrengur, sem mun verða í framtíðinni, ég held að það sé nokkuð ljóst, það er bara spurning um árafjöldann, er kominn tengingin til Evrópu og þar mun fást mun hærra verð fyrir þessa hreinu orku en hér á landi. Það er fyrst og fremst það sem þessir aðilar sem hafa í hyggju með því að fjárfesta í vindmyllugörðum og ýmiss konar raforkuframleiðslu, virkjunum undir 10 MW o.s.frv., þ.e. að hámarka hagnað sinn og arðsemi. Það er gert með því að selja orkuna úr landi. Þannig (Forseti hringir.) að það er mikið í húfi. Það finnst mér hafa verið algerlega vanmetið (Forseti hringir.) í þessu máli, þ.e. hvaða afleiðingar þetta getur haft.