ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Nú verð ég að vera ósammála hv. þingmanni vegna þess að við höfum í ríkisstjórn flokk sem einu sinni hét Vinstrihreyfingin — grænt framboð og barðist mjög fyrir náttúruvernd. Nú er sá sami flokkur orðinn í fararbroddi í því að markaðsvæða raforku landsins. Ég geri mér í hugarlund að flokksmenn þess ágæta flokks hljóti að vera sér meðvitaðir um að fyrst þeir segja A þurfi þeir að segja B. Ég get ekki trúað því að það ágæta fólk — þá er ég að tala um þingflokkinn ekki hinn almenna félaga — sem er svo áfjáð í að markaðsvæða hér raforku geri sér ekki grein fyrir því að markaðsvæðingunni og hugsanlegum sæstreng fylgi það óneitanlega að brjóta þurfi nýtt land undir virkjanir. Þess vegna held ég að það sé í (Forseti hringir.) sjálfu sér jarðvegur fyrir það að hér verði virkjað meira, fyrst (Forseti hringir.) þessi flokkur er kominn í forustu þeirra sem vilja markaðsvæða raforkukerfið.