ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég ætla að leyfa mér að taka undir orð hv. þingmanns hvað það varðar að þetta er sérstakt áhyggjuefni fyrir landsbyggðina. Bæði eru þar svæði sem eru veik fyrir hvað varðar aðgang að orku, annaðhvort út frá veikleikum í dreifikerfinu eða skorti á framboði nýrrar orku. Á landsbyggðinni eru fyrirtæki mjög oft undir meðalframlegðarhlutföllum í sínum geira, einfaldlega vegna óhagræðis sem hlýst af fjarlægð frá markaði og fleira slíku, dýr aðföng og þar fram eftir götunum. Það sem vinnur gegn Íslandi í samanburði við fyrirtæki annars staðar á við með sambærilegum hætti fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni hér heima í samanburði við fyrirtæki sem starfa á höfuðborgarsvæðinu.