ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég hef hér verið að flytja ræður sem varða tilskipun 72/2009 sem er, ef þannig mætti að orði komast, eitt hryggjarstykkið í orkupakka þrjú. Ég hef verið að fara yfir megingreinar sem varða okkur sem kannski hefur ekki verið alger sátt um hvað þýði. Hér hafa fræðimenn og álitsgjafar komið með umsagnir um pakkann í heild og reyndar um tilskipunina eina og sér. Á fyrri stigum þessarar umræðu tóku menn upp atriði úr þessum umsögnum og köstuðu þeim fram en mér fannst eins og það vantaði á dýpt og skilning á einstökum atriðum þessarar tilskipunar.
En ég er kominn hér að ákveðinni grein sem heitir „Almenn markmið eftirlitsvalds“ en fór í fyrri ræðu minni inn á eftirlitsvaldið, þ.e. Orkustofnun. Með leyfi forseta, stendur hér:
„Við framkvæmd eftirlitsverkefna sem tilgreind eru í þessari tilskipun skal eftirlitsyfirvald gera allar viðeigandi ráðstafanir til að ná eftirfarandi markmiðum innan ramma skyldna þeirra og valdsviðs eins og mælt er fyrir um í 37. gr., í nánu samráði við önnur viðkomandi landsyfirvöld þ.m.t. samkeppnisyfirvöld, eftir því sem við á, og með fyrirvara um valdsvið þeirra“ — þ.e. með fyrirvara um valdsvið samkeppnisyfirvalda, vegna þess að eftirlitsbatteríið, þ.e. eftirlitsyfirvaldið, Orkustofnun, verður orðið sjálfstætt frá framkvæmdarvaldinu á Íslandi.
Í a-lið segir, með leyfi frú forseta:
„að efla, í nánu samstarfi við stofnunina, eftirlitsyfirvöld annarra aðildarríkja og framkvæmdastjórnina, samkeppnishæfan, öruggan og umhverfislega sjálfbæran innri markað fyrir raforku í bandalaginu, og skilvirkan markaðsaðgang fyrir alla viðskiptavini og birgja í bandalaginu og tryggja viðeigandi skilyrði fyrir skilvirka og áreiðanlegra starfrækslu raforkuneta, að teknu tilliti til langtímamarkmiða“.
Og hver skyldu nú vera langtímamarkmið Evrópubandalagsins? Hvert er langtímamarkmið með innleiðingu orkupakka þrjú og svo fjögur og fimm og þeirra sem á eftir koma? Jú, samræmdur markaður þar sem raforkan flæðir óhindrað á milli landa og innan landa og það að tengja saman markaðina, samofningur.
Áfram er haldið:
„að þróa svæðisbundna markaði í bandalaginu sem eru samkeppnishæfir og starfa á tilhlýðilegan hátt m.t.t. þess að ná markmiðunum sem um getur í a-lið“ — þ.e. umhverfislega sjálfbæran innri markað fyrir raforku í bandalaginu og skilvirkan markaðsaðgang fyrir alla viðskiptavini og birgja í bandalaginu.
Þetta er skjal sem þarf að lesa svolítið fram og til baka, frú forseti. Það eru tilvísanir innan ákveðinna greina og úr greinum í aðrar greinar og svo jafnvel í önnur gögn.
C-liður er afar athyglisverður:
„að afnema takmarkanir í viðskiptum með rafmagn milli aðildarríkjanna, þ.m.t. að þróa viðeigandi flutningsgetu yfir landamæri til að anna eftirspurn og auka samþættingu landsmarkaða sem getur auðveldað raforkuflæði innan bandalagsins“.
Hvað skyldi þetta þýða á íslensku? Að afnema takmarkanir í viðskiptum með rafmagn milli aðildarríkjanna, þar með talið að þróa viðeigandi flutningsgetu yfir landamæri — það er eitt af markmiðunum með þessari innleiðingu að þróa til að mynda sæstreng eða einhverjar aðrar aðferðir sem kannski mættu ekki vera uppfundnar núna til þess að ná þeim markmiðum að geta flutt orkuna, hreinu orkuna, frá Íslandi til annarra aðildarríkja.
Ég sé að tíminn er að hlaupa frá mér og ég hef aðeins komist mjög grunnt inn í það sem ég ætlaði að ræða hér. Ég bið frú forseta um að bæta mér á mælendaskrá aftur.