ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa ræðu sem og aðra sem hann hefur flutt sama eða svipaðs efnis. Ég er farinn að halda, frú forseti, að þetta sé kannski ein gaumgæfnasta kynning sem fram hefur farið á efni orkupakkans til þessa, þ.e. að gera fólki grein fyrir hvað er á bak við þá mynd sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa dregið upp. Í sjálfu sér held ég að með þessu sé hv. þingmaður að vinna verk sem ríkisstjórnin hefði átt að gera vegna þess að hún hefði átt að útskýra í þaula fyrir fólki um hvað málið snýst en hefur ekki gert það.
Þess vegna er líka ánægjulegt að hv. þingmaður skuli hafa dregið reglugerð 72/2009 mjög fram í dagsljósið til að fara yfir, sem hefur ekki verið rætt svo mikið um en er í sjálfu sér grunnurinn að öllu saman. Þess vegna er svo nauðsynlegt að fara yfir þetta með þeim hætti sem hv. þingmaður hefur gert og þetta sýnir enn hvernig umræða okkar hér um skeið hefur sífellt dýpkað og skilningurinn í sjálfu sér aukist. Þetta hefði náttúrlega átt að gerast með þátttöku þeirra sem vilja lemja orkupakkann í gegnum þingið á örskotshraða.
Mig langar að spyrja hv. þingmann í fyrsta lagi um skyldu stjórnvalda til að upplýsa þegnana um áform sem þeir hafa sem geta breytt lífi þeirra til framtíðar. Í öðru lagi hvort hv. þingmanni finnist ástæða til fyrir stjórnvöld að taka þau (Forseti hringir.) áform til hliðar til að hægt sé (Forseti hringir.) að fara í þá gaumgæfnu kynningu sem ég held (Forseti hringir.) að við séum sammála um að þurfi að fara fram?