149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:12]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Varðandi skyldu stjórnvalda til að upplýsa er ég hjartanlega sammála hv. þingmanni um að auðvitað er það alger grunnskylda í lýðræðisþjóðfélagi að stjórnvöld upplýsi almenning um hver fyrirætlunin sé og hver áhrifin verði. Þá er ég ekki að tala um það sem hefur líka verið rætt hér, einhver hugsanleg áhrif, auðvitað þarf að ræða það líka, heldur það sem kallað er de facto eða staðreyndir málsins um það sem mun gerast, frú forseti, og er skrifað inn í innleiðinguna þannig að allir geri sér alveg grein fyrir því að hér verða breytingar. Og þær verða miklar. Það verða miklar breytingar í stjórnsýslu sem og í umhverfi fólks eins og það þekkir það í dag; varðar grunnþarfir fólks, orkuna, auðlindir landsins. En kynningin sem fólk fær og er boðið upp á er algjört núll mál, skiptir engu máli. Þetta eru formlegheit ein, svona eins og að segja góðan daginn þegar maður hittir mann í fyrsta skipti að morgni, þarft ekki að gera það en er kurteisi. Það er kurteisi að innleiða þetta gagnvart samstarfsríkjunum. Það er bara alls ekki svo.

Þetta er risastórt mál sem hefur áhrif á fólk, á þegna. Ég trúi því að stjórnarflokkarnir viti betur því að allir voru þeir (Forseti hringir.) búnir að lýsa því yfir á fyrri stigum máls að þetta myndu þeir ekki gera.