ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni afar gott andsvar og vel mælt, svo sannarlega. Hvað nei hefur skilað okkur er með þeim hætti að við stæðum sjálfsagt ekki hér í dag ef við hefðum ekki staðið á rétti okkar, sýnt djörfung og frumkvæði í því að berjast fyrir okkar mikilvægu málefnum, sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldisréttinum. Auðvitað er þetta mál sem lýtur að þeim mikilvægu málum, þ.e. að vera óhrædd við að fara með málið þá leið sem hægt er að fara, lögformlega og eðlilega leið.
En þá veltir maður fyrir sér. Er einhver ástæða fyrir því að ríkisstjórnin vill ekki fara þessa leið? Er hún kannski sú að það er raunverulegur vilji ríkisstjórnarinnar til að fara alla leið og (Forseti hringir.) innleiða þennan pakka? Þeir búa til einhverja (Forseti hringir.) heimabrúksfyrirvara til að friðþægja stuðningsmenn sína, (Forseti hringir.) grasrót o.s.frv.? Er þetta kannski raunverulega ástæðan fyrir því að (Forseti hringir.) menn vilja ekki fara þessa lögformlegu leið?
(Forseti (BHar): Enn og aftur verður forseti að biðja hv. þingmenn að virða tímamörkin.)