ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir ræðuna. Hér er búið að fara nokkuð ítarlega yfir þetta og þær yfirlýsingar og fullyrðingar um tenginguna og þá kvöð um að sverja og sýna Noregi hollustuna. En einnig hefur verið rætt um þennan viðsnúning sem er mér hugleikinn og viðsnúning þeirra flokka sem síst skyldi. Raunar er mér næst hjarta að segja að það sé einn flokkur á Alþingi sem hefur þó verið fullkomlega heiðarlegur í afstöðu sinni, og það er Viðreisn, vegna þess að það er flokkur sem hefur lýst eindregnum vilja sínum á því að ganga í Evrópusambandið með öllum þeim kostum og göllum sem því fylgja og hafa rökstutt það mál, þrátt fyrir að ýmsar ræður hefðu kannski mátt vera innihaldsríkari um efnið og minna af því að sverta þá sem hér hafa staðið nóttum saman.
En eitt er greinilegt, að hæstv. fjármálaráðherra er lesinn vegna þess að hann gerir sér grein fyrir í því viðtali sem vitnað var til, að ásælni í völd hjá ACER, að undirlagi Evrópusambandsins, er alltumlykjandi og svífur yfir vötnum í þessari innleiðingu. Ég var mjög ánægður með þetta viðtal, las það og á það til vegna þess að hann lýsti afstöðu sem klárlega er afstaða meiri hluta Íslendinga og gaf von um að hér yrði staðið í lappirnar og fylgt eftir vilja þjóðarinnar, ef svo má að orði komast.
Mig langar til að inna (Forseti hringir.) hv. þingmann eftir því hvort hann telji (Forseti hringir.) að verið sé að beita þá blekkingum (Forseti hringir.) sem hér hafa talað fyrir málinu?