ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þessi orð, einkunnarorð Sjálfstæðisflokksins, hafa bergmálað í huga mér í gegnum þessa umræðu: Gjör rétt, þol ei órétt. Það er ekkert leyndarmál að sá sem hér stendur var áður flokksbundinn Sjálfstæðismaður fyrir nákvæmlega þessa ástæðu.
Hv. þingmaður velti upp þeirri spurningu hvort flokkurinn væri að breytast í svokallaðan krataflokk. Getur verið að hér sé um þennan svokallaða popúlisma að ræða þar sem menn þora ekki að standa við sannfæringu og fylgja stefnu, heldur elta það sem menn telja vinsælt í þjóðfélagsumræðunni hverju sinni? Það er skilgreining (Forseti hringir.) á popúlisma. Mér þætti vænt um að fá hugleiðingar (Forseti hringir.) hv. þingmanns um hvort hér sé verið að sveigja af stefnu og hallast (Forseti hringir.) í þá átt.