ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ef ég ætti að lýsa þessari orðræðu í einu orði myndi ég kannski segja í ljósi sögunnar að þetta væri framsóknarlegt, menn slá úr og í og hlaupa í sífellu frá því sem þeir hafa áður lofað. En ég hef áður sagt: Ég er ekkert viss um að Sjálfstæðisflokkurinn t.d. hefði fengið gott brautargengi ef hann hefði gengið til kosningabaráttunnar síðast og sagt einlæglega: Við ætlum áður en haninn gelur þrisvar að svíkja landsfundarályktun okkar um orkupakka þrjú og við ætlum að ganga Evrópusambandinu á hönd. Og ég er heldur ekkert viss um að þingmenn VG, sem fengu að vísu erfiða útkomu, væru mjög borubrattir ef þeir hefðu gengið til leiks og sagt: Við ætlum að vera í forustu fyrir markaðsvæðingu orkulinda á Íslandi. Ég er ekkert viss um það. Það getur að vísu verið að einhverjir aðrir hópar hefðu kosið þessa flokka, allt svo aðrir en þetta gamla, góða kjarnafylgi, það veit ég ekki um.
Það sem er kannski undarlegast við þetta allt er að sinnaskipti hæstv. fjármálaráðherra eru í blóra við hans eigið fólk. Og ekki bara það, þau eru í andstöðu við afstöðu meiri hluta þjóðarinnar í þessu máli. Það er líka óskiljanlegt með öllu — ég veit náttúrlega ekki um Framsóknarflokkinn sem kallar ekki allt ömmu sína — að hinir tveir flokkarnir skuli ganga fram í fullkominni andstöðu við meiri hluta þjóðarinnar í þessu mikilsverða máli. Það er eitthvað sem ég get ekki útskýrt og kannski þyrftum við (Forseti hringir.) bara atbeina vinnusálfræðings til að komast til botns í því hvað hefur komið fyrir hjá þessu fólki.