ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þau voru athyglisverð síðustu orð hv. þingmanns: Hvað hefur komið fyrir hjá þessu fólki? Nú er það svo að Sjálfstæðisflokkurinn er að fara að fagna 90 ára afmæli eftir einn eða tvo daga og það verður mjög fróðlegt að fá fréttir af því kaffiboði. Það væri enn fróðlegra ef ræða hæstv. fjármálaráðherra hér fyrir ári yrði endurflutt í því kaffiboði og menn gætu síðan borið hana saman við þær athafnir sem hæstv. fjármálaráðherra stendur fyrir í þessari ríkisstjórn. Ég er hrædd um að hann yrði á harðahlaupum, þyrfti jafnvel að yfirgefa kaffiboðið ef svo ber undir.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir að benda á þessa hluti og það er (Forseti hringir.) nauðsynlegt að við gerum það til að sýna fram á að (Forseti hringir.) málflutningur ríkisstjórnarinnar og ráðherra er með ólíkindum þegar kemur að þessum orkupakka.