149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:52]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Nú er það ekki mitt að hafa áhyggjur af innra starfi Sjálfstæðisflokksins. En ég verð að segja, eins og konan fyrir norðan, að ég myndi gjarnan viljað vera dauð fluga á vegg í þessu kaffisamsæti um helgina og heyra hvað fram fer þar. Það gæti líka orðið fróðlegt að fylgjast með því þar hvort þeir þingmenn og ráðherrar flokksins sem munu fara um og blása á þessi 90 kerti muni hlusta á það ágæta fólk, grasrótina í flokknum, þessa rótgrónu gömlu Sjálfstæðismenn sem nú bera sig illa og þekkja ekki flokkinn sinn lengur. Það væri kannski kjörið tilefni fyrir forustu flokksins (Forseti hringir.) að kynnast flokksfólkinu og heyra ofan í það og heyra skoðanir þess. Það er kannski bara kjörið tilefni.